Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Félagsþjónusta og húsnæðismál

Mál nr. 280/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 280/2021

Fimmtudaginn 30. september 2021

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. júní 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 10. mars 2021, á beiðni hennar um hækkun á grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar fyrir tímabilið 1. mars 2021 til 31. maí 2021.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 24. febrúar 2021, sótti kærandi um hækkun á grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar og undanþágu frá undirskrift maka fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2021. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 3. mars 2021, með þeim rökum að hún samræmdist ekki ákvæðum 8. gr. og 3. mgr. 11. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Kærandi áfrýjaði niðurstöðunni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi 10. mars 2021 og samþykkti að veita kæranda undanþágu frá undirskrift maka samkvæmt 8. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð en staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um hækkun á grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2021 samkvæmt 11. gr. reglnanna.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 9. júní 2021. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. júní 2021, var óskað eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Reykjavíkurborg var veittur frestur í þrígang til að skila greinargerð. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 16. ágúst 2021, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Frekari gögn bárust frá kæranda 27. og 29. ágúst 2021 og voru þau send Reykjavíkurborg til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 31. ágúst 2021. Frekari athugasemdir/gögn bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því hún sé flóttamaður frá B og hafi dvalarleyfi af mannúðarástæðum á Íslandi. Kærandi sé gift og fái fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg því hún hafi ekki annan möguleika til þess að sjá fyrir sér og syni sínum. Félagsþjónusta Reykjavíkur greiði kæranda fjárhagsaðstoð en aðeins helminginn af því sem hjón fái. Kærandi eigi barn og leigi húsnæði. Hún fái 170.155 kr. fyrir skatt á mánuði og sé fjárhagsstaða hennar því ekki góð. Eiginmaður kæranda sé flóttamaður og hælisleitandi á Íslandi. Hann fái 10.000 kr. á viku frá Útlendingastofnun. Mál eiginmanns kæranda muni fara fyrir dómstól á Íslandi og því sé óljóst hve langur tími muni líða þangað til niðurstaða verði komin í mál hans en mikilvægt sé að hann sé með fjölskyldu sinni. Aðstæður kæranda séu erfiðar, hún sé þunguð og það sé mikilvægt að hún sé við góða heilsu og hugsi vel um sig og son sinn. Kærandi óski eftir því að horft verði til aðstæðna hennar og félagslegrar stöðu, en ekki einungis hjúskaparstöðu og henni veitt full fjárhagsaðstoð til einstaklings.

III.  Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda. Tekið er fram að kærandi sé frá B og hafi fengið dvalarleyfi af mannúðarástæðum þann 8. apríl 2020. Kærandi sé gift en maki hennar sé með dvalarleyfi á C. Sótt hafi verið um fjölskyldusameiningu en sú umsókn hafi verið dregin til baka. Kærandi sé skráð „hjón ekki í samvistum“ í Þjóðskrá. Maki kæranda sé þó með skráð lögheimili hér á landi, í utangarðsskrá Þjóðskrár. Staða hans í Þjóðskrá sé „hjúskaparstaða óstaðfest“. Hann hafi verið skráður hér á landi frá 21. febrúar 2018 að D en mál hans sé til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Kærandi sé með sama lögheimili og maki hennar að D, frá 2. september 2020.

Kærandi hafi verið á fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg frá 1. september 2020 og hafi hún fengið undanþágu frá skilyrði um undirskrift maka samkvæmt þágildandi 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar, vegna framangreinds. Þann 24. febrúar 2021 hafi hún sótt um fjárhagsaðstoð fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2021, auk þess að hafa óskað eftir undanþágu frá undirskrift maka samkvæmt 8. gr. og hækkun grunnfjárhæðar, sbr. 11. gr. (nú 10. gr.), sem hafi verið synjað. Kærandi hafi áfrýjað þeirri ákvörðun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar sem hafi samþykkt undanþágu frá undirskrift maka, sbr. 8. gr., en synjað beiðni um hækkun grunnfjárhæðar, sbr. 11. gr. reglnanna (nú 10. gr.).

Reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hafi tekið gildi frá og með 1. apríl 2021 og verið samþykktar á fundi velferðarráðs þann 24. febrúar 2021 og á fundi borgarráðs þann 4. mars 2021. Tímabil það sem hér um ræði sé frá 1. mars til 31. maí 2021 og gildi því eldri reglur um hluta tímabilsins. Eldri reglur um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar með áorðnum breytingum hafi tekið gildi þann 1. janúar 2011 og verið samþykktar á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar þann 17. nóvember 2010 og á fundi borgarráðs þann 25. nóvember 2010. Umræddar reglur séu settar á grundvelli 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum.

Sveitarstjórn skuli setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er meti þörf og ákveði fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 1. og 2. mgr. 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Lögin veiti þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilji veita. Í samræmi við framangreint, auk ákvæðis stjórnarskrár um sjálfstjórn sveitarfélaga, sé mat á þeirri nauðsyn lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veiti, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Á hjónum hvíli gagnkvæm framfærsluskylda samkvæmt 2. og 3. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 og sé tekið mið af því í lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Í VI. kafla laga nr. 40/1991 sé kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna komi fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. 

Litið sé svo á að fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi sé neyðaraðstoð sem ekki beri að veita nema engar aðrar bjargir séu fyrir hendi. Í 1. gr. þágildandi reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg (samhljóða 1. gr. núgildandi reglna), komi fram að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geti séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum. Sú meginregla gildi að umsækjandi fái einungis greidda fjárhagsaðstoð ef hann geti ekki framfleytt sér sjálfur. Umrædd meginregla eigi sér stoð í 2. gr. þágildandi reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg (samhljóða 2. gr. núgildandi reglna) og 19. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, sem kveði meðal annars á um skyldu hvers og eins að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Í 2. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg sé mælt fyrir um gagnkvæma framfærsluskyldu hjóna með vísan til hjúskaparlaga nr. 31/1993. 

Í III. kafla um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg sé fjallað um fjárþörf og útreikning fjárhagsaðstoðar. Í 3. mgr. 10. gr. reglnanna komi fram að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar hjóna geti numið allt að 340.310 kr. en í því samhengi sé venja að tala um „hjónakvarða“ sem eigi við þegar bæði hjón fullnægi skilyrðum fjárhagsaðstoðar og greiðist þá fjárhæð fjárhagsaðstoðar samkvæmt framangreindu til þeirra sameiginlega. Um sé að ræða 3. mgr. 11. gr. í eldri reglum en þær séu samhljóða og verði hér eftir vísað til núgildandi reglna.

Þegar annað hjóna komi ekki að umsóknarferli um fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg af einhverjum sökum geti það hjóna sem sé með skráð lögheimili í Reykjavík eftir atvikum átt rétt á „hálfum hjónakvarða“.  Skapast hafi sú venja í framkvæmd að taka tillit til aðstæðna og veita undanþágu frá kröfu um undirskrift maka á umsókn svo sem í þeim tilvikum þegar maki sé enn ekki kominn til landsins en fjölskyldusameining er fyrirhuguð í stað þess að synja umsókn. Þá sé tekið tillit til þess ómöguleika sem valdi því að maki taki þátt á umsóknarferlinu á þeim tímapunkti en þá sé greiddur „hálfur hjónakvarði“. Einnig sé tekið tillit til þess ef skýr gögn liggi fyrir um að viðkomandi hafi þegar hafið skilnaðarferli en í þeim tilvikum komi til skoðunar að hækka grunnfjárhæð og greiða fjárhagsaðstoð eins og um ógiftan einstakling sé að ræða, sbr. 4. mgr. 10. gr. reglna um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar. Verði slíkt að teljast málefnalegt og lögmætt sjónarmið.

Mat hafi farið fram á aðstæðum kæranda óháð skráningu hjúskaparstöðu hennar í Þjóðskrá. Við matið hafi verið byggt á málefnalegum og lögmætum sjónarmiðum. Umsókn um fjölskyldusameiningu hafi verið afturkölluð en maki kæranda hafi þó verið með lögheimili á landinu frá árinu 2018 þar sem mál hans hafi verið til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Vegna þessarar flóknu stöðu í málefnum kæranda hafi verið fallist á að veita henni undanþágu frá skilyrði þágildandi 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar um undirskrift maka. Kærandi hafi því fengið því sem samsvari hálfum hjónakvarða, sbr. 3. mgr. 10. gr., í stað þess að vera synjað um fjárhagsaðstoð.

Þá hafi verið litið til þess hvort skilnaður væri fyrirhugaður og hvort fyrir lægi staðfesting á því að hann væri kominn til meðferðar hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu. Við þær aðstæður kæmi til skoðunar að hækka grunnfjárhæð til samræmis við 4. mgr. 10 gr. reglna um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar. Það eigi hins vegar ekki við um aðstæður kæranda.

Með hliðsjón af öllu framansögðu hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs Reykjavíkurborgar því talið að veita ætti undanþágu frá undirskrift maka tímabilið 1. mars 2021 til 31. maí 2021, sbr. 8. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg, en að synja bæri beiðni um hækkun á grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar tímabilið 1. mars 2021 til 31. maí 2021 á grundvelli 10. gr. reglna um fjárhagsaðstoð (og 11. gr. þágildandi reglna).

Samkvæmt framansögðu sé ljóst að ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn fyrrgreindum reglum um fjárhagsaðstoð, sbr. 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, né öðrum ákvæðum laga nr. 40/1991, með síðari breytingum.

IV.  Niðurstaða

Kærð er synjun Reykjavíkurborgar á beiðni kæranda um hækkun á grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar fyrir tímabilið 1. mars til 31. maí 2021 með vísan til 11. gr. reglna sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr. Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 1. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg, sem voru í gildi þegar hin kærða ákvörðun var tekin, var kveðið á um inntak fjárhagsaðstoðar. Þar kom fram í 1. mgr. að skylt væri að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki gætu séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. reglnanna skyldi við ákvörðun á fjárhagsaðstoð leggja til grundvallar grunnfjárþörf til framfærslu, sbr. 11. gr., og draga frá henni heildartekjur, sbr. 12. gr. Í 2. mgr. 10. gr. kom fram að taka skyldi tillit til sérstakra aðstæðna eftir því sem við ætti.

Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklings, 18 ára eða eldri sem rak eigið heimili, gat samkvæmt 1. mgr. 11. gr. reglnanna numið allt að 212.694 kr. á mánuði. Með rekstri eigin heimilis var átt við þær aðstæður þegar viðkomandi byggi í eigin húsnæði eða leigði húsnæði og legði fram þinglýstan húsaleigusamning um húsnæðið, sbr. 2. mgr. 11. gr. Grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til hjóna/sambúðarfólks gat numið allt að 340.310 kr., sbr. 3. mgr. 11. gr. Samkvæmt 12. gr. reglnanna komu allar tekjur einstaklings/maka í þeim mánuði sem sótt var um og mánuðinn á undan, aðrar en greiðslur vegna barna og húsaleigubætur/vaxtabætur, til frádráttar við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi gift kona með eitt barn og fékk hún dvalarleyfi af mannúðarástæðum á Íslandi þann 8. apríl 2020. Hjúskaparstaða kæranda er skráð sem „hjón ekki í samvistum“ í Þjóðskrá og hefur skráð lögheimili hennar verið að D frá 2. september 2020. Hjúskaparstaða maka kæranda er skráð sem „hjúskaparstaða óstaðfest“ og er hann skráður í utangarðsskrá Þjóðskrár með póstfang að D frá 21. febrúar 2018. Maki kæranda er með dvalarleyfi á C en dvelur nú á Íslandi og er mál hans til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Umsókn um fjölskyldusameiningu hafði verið lögð fram en var dregin til baka.      

Kærandi hefur verið á fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg frá 1. september 2020. Henni hefur verið veitt undanþága frá skilyrði þágildandi 8. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð um undirskrift maka og að lagðar væru fram upplýsingar um tekjur hans og eignir. Kærandi fékk greidda fjárhagsaðstoð að fjárhæð 170.155 kr., eða helminginn af því sem fjárhagsaðstoð til hjóna/sambúðarfólks getur numið. Reykjavíkurborg hefur vísað til þess að þegar annað hjóna komi ekki að umsóknarferli um fjárhagsaðstoð hjá Reykjavíkurborg af einhverjum sökum geti það hjóna sem sé með skráð lögheimili í Reykjavík eftir atvikum átt rétt á „hálfum hjónakvarða“.

Í máli þessu virðist ágreiningslaust að eiginmaður kæranda er réttindalaus þegar kemur að fjárhagsaðstoð á grundvelli laga nr. 40/1991 og án dvalar- og atvinnuleyfis hér á landi. Kærandi er því ein um rekstur heimilisins og framfærslu sína og barns síns. Að mati úrskurðarnefndar bar Reykjavíkurborg því að taka mið af þeim aðstæðum kæranda og veita henni fjárhagsaðstoð í samræmi við þágildandi 1. mgr. 11. gr. reglna sveitarfélagsins.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 10. mars 2021, um synjun á beiðni A, um hækkun á grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar fyrir tímabilið 1. mars 2021 til 31. maí 2021, er felld úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.

 

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum